Stjórnandi PDF Print E-mail
Written by Huldar Örn Sigurðsson   
Thursday, 13 November 2008 07:36
Jón Kristinn CortezJón Kristinn Cortez lauk kennaraprófi frá Tónlistaskólanum í Reykjavík 1973 og 8. stigs prófi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík 1986. Hann hefur starfað að tónlistarmálum síðan; sem tónmenntakennari, tónlistarkennari, kórstjóri og tónlistarútgefandi, en hann stofnaði tónverkaútgáfuna Ísalög 1978. Hann stjórnaði Kór Verzlunarskólans 1977-81, Árnesingakórnum í Reykjavík 1978-80 og Samkór Selfoss frá 1986 þar til hann tók við stjórn Þrasta 1997. Hann er deildarstjóri við Söngskólann í Reykjavík þar sem hann hefur kennt tónfræðagreinar frá stofnun skólans 1973.
Last Updated ( Thursday, 13 November 2008 08:29 )